.: STJÓRNBORÐ //

.: NÝJAST :.

10.02.2010
04:36












.: DAGATAL //
Back Febrúar 2010
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
.: FLOKKAR //
.: Hugarástand Ofurnördsins....í máli og myndum. //
[ Fer ekki alveg að koma helgi...? ]
































blankó.: fílingur // blankó
.: í eyrunum // DEEP PURPLE - Drifter
.: flokkar //: ,
skoða )
setja í minningar segðu frá
[ Gelgjur ráða heiminum ]
Ótrúlegt að þetta lag skuli komast áfram í Eurovision. Er afskaplega pirruð á gelgjum landsins núna, sem greinilega mössuðu símakosninguna. Allavega hefur engin viti borin manneskja sem ég veit af fundist þetta lag eiga að fara áfram. Gerið þið ykkur grein fyrir því að við erum að fara að senda HVAL í keppnina að syngja sama lag og í hittífyrra?? Ég stórefast um að við komumst einusinni upp úr undakeppninni.
Já, ég hefði örugglega ekki einu sinni nennt að fylgjast með þessum ósköpum nema að mér var nógu illa við þetta lag til að vilja *ekki* sjá það komast áfram, og svo var Bjarni með Eurovisjon-partí (eða öllu heldur hið árlega Faxaflóamót í Fimbulfambi) svo við fylgdumst með herlegheitunum. Eftir júrovisjonskandalinn og Fimbulfambið var tekin ágætis törn í Singstar en eftir það var ég ekki með nenn í meira partístand, enda ennþá pínu þunn eftir kvöldið áður....
Þar hittumst við nokkrar dömur heima hjá Heiðu og spjölluðum yfir glasi, sem endaði svo á Kaffibarnum. Aftur! Fannst mér eiga þetta samt fyllilega skilið, þar sem ég var búin að eyða þremur dögum í pirringi yfir heimadæmi í stærðfræði sem átti að skila um kvöldið. Ég hefði betur haldið kjafti um hvað það væri búið að ganga vel í áfanganum hingað til....

Og svo er það þvottavélin fræga.
Hún hefur nú hagað sér almennilega síða hún kom úr viðgerð seinasta föstudag, svo ég fékk bara smá sjokk þegar ég opna inn á bað á miðvikudagskvöldið og stíg beint í 2ja cm djúpt vatn....yndislegt alveg. Hún var (sem betur fer!) ekki biluð, heldur hafði affallsslangan bara losnað úr niðurfallinu og dældi öllu vatninu beint út á gólf. Gamli gólfdúkurinn á baðinu stóð fyrir sínu svo ekkert skemmdist og rétt lak smávegis yfir þröskuldinn. Tók slatta af þolinmæði, fægiskóflu og nokkur handklæði til að koma öllu vatninu ofan í baðkarið. Jæja, það var svosem kominn tími á að skúra gólfið almennilega. ;-)

Annars er það bara læri læri læri þessa dagana. Lokapróf í stærðfræði á föstudaginn. Fattaði hinsvegar að ég fór á bílnum í gærkvöldi til Bjarna svo smá göngutúr yfir í Kópavoginn að sækja kvikindið varð það að vera. Ágætis labbitúr, tekur ekki nema rúman hálftíma og maður sér ýmislegt merkilegt og athyglisvert á leiðnni svona í rökkrinu. Var samt engan veginn að ætla að nenna þessu, svona á kúrilegum sunnudegi.

Jæja, Himmelblå er að byrja, heyri í ykkur seinna.

.: í eyrunum // THE PRODIGY - Medusa's path
.: flokkar //: , , ,
skoða )
setja í minningar segðu frá
[ Og þá er kominn febrúar ]
Puðr puðr. Finn núna fyrir því hvað það er að vera tekjulaus og bótalaus. Bara leiðindi og vesen. Jan og Feb verða verstir, svo fer þetta að skána.

Fín helgi samt, svona miðað við að ég ætlaði ekki að gera neitt. Fylgdist með leiknum með öðru auganu þar sem ég vaknaði með hausverk dauðans á laugardagsmorgninum og nennti engu. Auðvitað voru strákarnir ekkert að fara að taka Frakkana, við erum að tala um besta handboltalið Í HEIMI. Kíkti á árslistakvöld PartyZone um kvöldið sem var að hluta til sent út í beinni útsendingu af Kaffibarnum. Mikið stuð og stemning og auðvitað frábær tónlist, og svo fór kampavínið að flæða....hólí mólí. Rosalega skemmtilegt kvöld. :)
Fór samt tiltölulega snemma heim, því ég ætlaði að hitta Evu í lönsj á Friday's sunnudeginum og síðan skelltum við okkur að sjá Avatar, enda einu tvær manneskjurnar á íslandi held ég sem áttum eftir að sjá þessa frægu mynd! Myndin er auðvitað svakalega löng og mér fannst hún rosalega lengi að byrja, en mjög flott ræma. Situr alveg eftir í manni.
Mæli samt ekki með því að fara með kampavínsþynnku í þrívíddarbíó...var oðrið vel flökurt þegar hléið loksins kom! Úff... :)
Þannig að ég sá ekki úrslitaleikinn fyrr en hann var endursýndur seinan um kvöldið á RÚV, og hann var ansi helvíti magnaður. Hreiðar hennar Svönu nánast bjargaði leiknum og Alexander Petersson sýndi snilldartakta!


Fannst samt soldið klént að sjá móttökuhátíðina sem strákarnir fengu...kannski ekki úr miklu að moða með sólarhringsfyrirvara heldur.

Og já, ein-mynd-á-dag verkefnið gengur bara þrusuvel! :)

pirruð.: fílingur // pirruð
.: flokkar //: , , , , , , ,
skoða )
setja í minningar segðu frá
[ **Árslistinn 2009** ]
Talaði víst um það hér í lok árs að setja inn lista með 'best-of' hittogþetta frá 2009. Sem varð svo aldrei, frekar en svo margt annað sem ég segist alltaf ætla að gera! :)
Er að hlusta á þá PartyZone félaga kynna árslistann sinn og fyllist barasta eldmóði til að gera slíkt hið sama! Tæknin er mér mjög svo hliðholl í þessum efnum, þar sem 99% af tónlist sem ég hlusta á er annað hvort spiluð í iPodinum mínum eða hér í tölvunni (þá Scrobbluð í gegnum last.fm) og allt skrásett sjálfkrafa. Svo það var lítið mál að samkeyra iTunes og last.fm til að sjá hvaða lög hafa verið oftast spiluð hjá minni á árinu. Get ekki sagt að þar hafi mikið komið á óvart. :)


Svo, topp 20 lagalisti Geimryks fyrir árið 2009:


1. Pet Shop Boys – Love etc. - Fysti singullinn af nýju plötu Pet Shop Boys. Var spilað í HENGLA á árinu, enda var platan frábær og kíkt eins og á eina tónleika... :)
2. Sigur Rós – Inní mér syngur vitleysingur - Flott lag sem ég hélt mikið upp á á vormánuðum, en eftir hinn mjög svo eftirminnilega "tryllta tjáningardans" okkar á Barböru eitt kvöldið, mun þetta lag AÐ EILÍFU bara minna mig á Ásgeir Helga!
3. Eric Prydz – Pjanoo - Eitt af uppáhöldum mínum veturinn 2008 og var það áfram langt inní 2009.
4. The Prodigy – - Take Me To The Hospital - Toppurinn á nýju Prodigy plötunni, að mínu mati. Gömlu fýrarnir komnir aftur í gírinn!
5. MGMT – Electric Feel - Veit ekki hvað það er við þetta lag, finst þetta retro-sound bara snilld.
6. Ego – Í hjarta mér - Nei, ekki tæknileg mistök hér á ferð. Fannst þetta lag ekkert spes (frekar en önnu Bubbatónlist) þegar ég heyrði það fyrst, en það vann stórlega á. Kannski var það bara hugarfarið hjá mér á þessum tíma sem gerði það svona móttækilegt, hver veit?
7. The Prodigy – Warrior's Dance - Annar slagari frá hinum endurfæddu Prodigy-mönnum
8. Pet Shop Boys – Pandemonium - Þetta hefði klárlega átt að verða singull af plötunni, alveg óskiljanlegt að svo varð ekki.
9. The Killers – Spaceman - Eitthvað mjög svo grípandi við þetta sem festi það á playlistunum hjá mér á árinu.
10. Yuksek – Tonight (Kris Menace Remix) - Einn af PartyZone hitturunum. Þarf að segja meira? :)
11. Familjen – Snurrar i min skalle - Hér er lag sem ég bara VARÐ að leita uppi um leið og ég heyrði það fyrst! Mjög sturlað en samt svo flott!
12. Radiohead – All I Need - Aldrei fílað Radiohead eða slíkt neitt af ráði, en þetta lag nánast ásótti mig þegar ég heyrði það fyrst.....
13. Daníel Bjarnason – Processions II. Spindrift - Fyrstu Sinfó-tónleikar sem ég fer á í áraraðir og heyri þessa argandi gargandi snilld: Miðkaflinn í 'Processions', verki Daníels Bjarnasonar í flutningi undrabarnsins Víkings Heiðars Ólafssonar á Myrkum Músíkdögum í febrúar. Þvílík upplifun!!
14. The Prodigy – Black Smoke - Meira af Prodigy-plötunni.
15. DJ Mehdi – Pocket Piano (Joakim Remix) - Án efa einn af flottari PartyZone slögurum ársins! Joakim var sterkur í remixunum í ár.
16. The Prodigy – Thunder - Og enn meira af Prodigy.
17. Pet Shop Boys – Building a wall - Eitt af þeim lögum sem fyrst heillaði mig af nýju Pet Shop Boys plötunni, aðallega textinn.
18. Sébastien Tellier – Kilometer (Aeroplane Remix) - Þriðji og seinasti PartyZone hitarinn á þessum lista. Því miður!
19. The Prodigy – Stand Up - Þetta lag varð betur þekkt sem SkjárEinn stefið í sumar. Uss uss.
20. Lady GaGa – Poker Face - Lady Gaga finnst mér alger snillingur í að markaðssetja ímynd sína. Og gefur út catchy lög, því er ekki að neita.

Já, þessi listi er greinilega mjög mikið litaður af því að báðar uppáhaldshljómsveitirnar mínar gáfu út plötur á árinu. En ekki hvað? ;)

nörd.: fílingur // nörd
.: í eyrunum // YUKSEK - Tonight (Kris Menace remix)
.: flokkar //: , , , , ,
skoða )
setja í minningar segðu frá
[ AUKAKAST! ]
Eigum við eitthvað að ræða þennan handbolta, eða?? Ég hef barasta ekki taugar í þetta!

Þar sem ég er þessa dagana að hjálpa Bjarna með bókhaldið sitt, er að sjálfsögðu ekki annað í stöðunni en að horfa á *alla* leikina. Þetta er svo taugatrekkjandi að það hálfa væri yfirdrifið og er ég ekki manneskja sem fylgist mikið með íþróttum yfirleitt, svo ég þekki ekkert leikreglurnar um víti, skref, aukakast, ruðning og þannig. En þetta er allt að koma. :)

Hef ekki fylgst svona spennt með íþróttaleik síðan við vorum að keppa um sæti á ÓL ágúst 2008. Það var líka mjög viðburðaríkur og skemmtilegur bloggmánuður....

ÁFRAM STRÁKAR!

Talandi um sigur: Þvottavélin margfræga = Egill vélaverkstæði : 0 | 3 : Geimryk
SEGIÐ svo að það borgar sig ekki að kvarta!!!! ;-)

Annars lítið að frétta, minnisvert til bloggs allavega. Feisbókarar fá að sjálfsögðu allt það nýjasta beint í æð, bæði hugrænt og myndrænt hverju sinni.
Sem minnir mig á það: Myndaalbúmið er *alveg* að verða tilbúið. Bara svona 'smá' hlutir eins og heimalærdómur og slíkt að þvælast fyrir. En þetta mun hafast fyrir rest (og alveg er ég viss um að þegar það gerist, hrynur annaðhvort síðan eða forritið sem ég er að nota til að keyra síðuna verður úrelt með öllu.)

Og þetta var bjartsýnisskot fimmtudagsins. Já, fimmtudags. Mér finnst hinsvegar eins og það sé búinn að vera mánudagur í allan dag.

.: í eyrunum // UNKLE feat IAN BROWN - Be there
.: flokkar //: , , , , ,
skoða )
setja í minningar segðu frá
[ * * * ]
Rok og rigning í það sem virðist vera hundraðasta daginn í röð. Svei!

Einstaklega viðburðalítil helgi, sofnaði ekki fyrr en um 9 á laugardagsmorguninn, sem þýðir auðvitað að ég var vöknuð aftur um hádegi. Svo nei, það varð ekki mikið úr helginni. Náði reyndar fullum nætursvefni á laugardagskvöldinu með smá hjálp í töfluformi. Sé fram á þurfa þess aftur fyrir svefninn í kvöld. Vona innilega að þetta verði ekki venjan, því fram að þessu hefur litla ég komist í gegnum daglegt líf og amstur án þess að þurfa að treysta á pillur eða lyf. Reynum að halda því áfram sem lengs, ókei?

Er loksins orðin prentaravædd. Þarf alltaf að prenta slatta af glósum fyrir skólann og sakna þess að eiga ekki skanna. Hafði aðgang að hvoru tveggja í vinnunni en svo er ekki lengur sökum skorts á atvinnu. Kominn tími á eigin græju og stefndi ég beint í Nýherja til að finna slíkt, enda Canon eitt af fáum vörumerkjum sem ég treysti, þótt það sé í dýrari kantinum. Fann fína fjölnotagræju en var treg að kaupa gripinn, fannst þetta samt of dýrt. Slefaði bara yfir linsunum og myndavélunum, verslaði augnstykki á EOS vélina mína (sem tapaðist um versló í fyrra) og rölti svo í Tölvutek, sem er í næsta húsi. Þar fann ég nákvæmlega sömu græju, bara 5.000 krónum ódýrari. Aldrei grætt jafn mikið á einum litlum labbitúr! ;)
Þessi græja skannar, prentar og ljósritar, er með innbyggðum minniskortalesara og getur prentað í ljósmyndagæðum...eða svo er sagt. Ég mun að vísu seint trúa svoleiðis úr nokkrum heimilisprentara.

Fylgist annars spennt með strákunum okkar á EM í handboltanum. Ég ætti kannski að sleppa því alfarið því um leið og ég fer að fylgjast með, þá gengur þeim illa. Neita því ekki að þetta er drulluspennandi en ég hef bara engan veginn taugar í svona lagað.

Ætla að láta þetta duga í bili, mjög afbrýðissamur kisurass situr hérna á stofuborðinu og starir á mig og vill að ég gefi sér að borða. Þvílík ósvífni.

.: flokkar //: , ,
skoða )
setja í minningar segðu frá
[ Uppvakningur ]
Búin að vera leiðinleg og stórfurðuleg vika.

Fyrir það fyrsta hef ég eiginlega ekkert getað sofið. Það skiptir engu hvort ég fer að sofa klukkan 10 eða 12 eða 3 eða 5, alltaf vöknuð ca. 2 tímum seinna og get engan veginn sofnað aftur...ef ég næ þá að sofna eitthvað á annað borð (búnar að vera 2 alveg svefnlausar nætur undanfarna viku.) Er orðin afskaplega pirruð og mygluð og þreytt og máttlaus af þessum sökum og með syngjandi hausverk núna í samfellt 3 daga. Fyrir utan að verða bara nettklikkuð svona í þokkabót og með bauga niður á hné. Jibbí skibbí!
Og svo er ég svöng. ALLTAF. Hef örugglega bætt á mig mörgum kílóum síðan um áramót af þessu einu saman, en er alltaf jafn slöpp og þreytt. Þetta lofar ekki góðu...

Var í stærðfræðiprófi á mánudaginn (þá búin að sofa mest lítið um helgina) og gekk líka svona þrusuvel! Eða...þangað til við fengum einkannirnar og ég með skitna fimmu. Eins og mér hafði gengið svo vel! Nei nei, þegar við fórum yfir dæmin, kom í ljós að útreikningarnir voru kórréttir...ég var bara, af einhverjum óskiljanlegum ástæðum, að setja kolvitlausar tölur inní dæmin. 8 varð allt í einu að 5 í einu dæmi, reiknaði óvart 2x eitthvað sem eitthvað í öðru veldi í öðru og ýmsar svona algerar klaufavillur. Pirrandi!!

Og hvern langar ekki að heyra smá meira um pirr??... )

Hinsvegar er ég búin að laga alla lausa enda og vesen varðandi bankamál og skólagjöld og LÍN og slíkt. LOKSINS. Svo þetta er allt að koma. Fæ að vísu ekki atvinnuleysisbætur þar sem ég er með of margar einingar í námi, og fæ ekki fulla framfærslu frá LÍN af því ég var með tekjur í fyrra. WHAT?? Úff.

Jæja, nenni ekki að pirrast meir. Ætla að leggjast í kör (bað-kör) á la freyðibað, með kaldan bjór og reyna að slappa pínu af. Þá kannski næ ég almemnnilegum svefni. :)

pirr pirr.: fílingur // pirr pirr
.: flokkar //: , , ,
skoða )
setja í minningar segðu frá
[ Úps...guli hnötturinn ]
Litla nördið alveg að klikka á nördaviðburðum og þessháttar þessa góða nýja árs 2010. Var algerlega búin að gleyma að einmitt nú í byrjun árs skella á allar hinar hefðbundnu verðlaunahátíðir vestanhafs...og eru alltaf á sunnudagskvöldum. Núna eru einmitt Golden Globe verðlaunin í Kalíforníu...og það er grenjandi rigning, hehehe.

Og já, ég væri ekkert að horfa á þetta í beinni nema að ég er með Sjónvarp Símans, og þar á meðal Þýsku stöðina Pro Sieben, sem sýnir alltaf beint, í TOPPgæðum frá helstu verðlaunahátíðunum þar vestra (eins og ég hef margoft minnst á áður hér.)

Fyrir þá nútímavæddu sem eru ekki svo mikið sjónvarpsvæddir lengur: http://www.justin.tv Og leitið svo bara að því sem þið viljið horfa á, sama hvaða landi eða stöð það er! ;-)

Alger schnilld.

Já, ég verð syfjuð í fyrramálið.

**EDIT**
The Hangover vinnur besta gamanmynd?? Já takk!

**EDIT 2**
Avatar vinnur sem besta dramamynd....spurning um að fara að koma sér í bíó að sjá þessa blessuðu ræmu. Nenni bara ekki í bíó ein...einhver geim??

nörd.: fílingur // nörd
.: flokkar //: , , , ,
skoða )
setja í minningar segðu frá
[ Ein mynd á dag... ]
...kemur sköpunargleðinni í lag.

Já, er loksins búin að koma 'Photo-a-day' projectinu í loftið, eins og ég talaði um hér um daginn. Kaus að nota sömu síðu og Hrund, www.blipfoto.com, þar sem hún er sniðin sérstaklega fyrir þetta verkefni: að setja inn eina mynd á dag.

Vessgú:

Meus vita quadrati / My life in pixels / Líf mitt í pixlum

Hún er líka linkuð inn á bæði Twitter og Facebook, þannig að þegar ég set inn nýja mynd, koma sjálfkrafa tilkynningar þar um. Sniðugt.


Annars er ég bara sárlasin heima núna. Var orðin eitthvað slöpp og tussuleg í gær og hrikalega þreytt í gærkvöldi, svo ég fór bara snemma að sofa. Sem voru mikil mistök, því þá vakna ég bara um miðja nótt í staðinn. Gat engan veginn sofnað aftur og var gjörsamlega ónýt í morgun með hita, beinverki, kvef og kverkaskít. Uss.

lasin.: fílingur // lasin
.: í eyrunum // GUS GUS - Add this song
.: flokkar //: , ,
skoða )
setja í minningar segðu frá
[ Jafna beinnar línu ]
Búin að vera ágætis vika. Skólinn byrjaður og reikna ég heimadæmi eins og jarðýta þessa dagana. Þess á milli er ég að vesenast í hinum og þessum verkefnum fyrir hina og þessa aðila, ganga frá ýmsum málum og slíkt. Fínt að gera svoleiðis í ársbyrjun, fara af stað með hreinan skjöld og gera upp "unfinished business".
Linda fór aftur til baunalands um helgina, svo við Karó og Heiða hittumst í smá snæðingi á Tívoli til að kveðja skvísuna og enduðum á Boston. Ágætlega rólegt þar samt miðað við fimmtudagskvöld.
Fyrsta vinnuhelgi annarinnar byrjaði á föstudaginn þar sem við frusum næstum úr kulda í kirkjusalnum, þannig að á laugardeginum mættu sumir með sína eigin hitablásara. Ég kom bara með auka peysu. Ætlaði að vera alveg ofur-bjartsýn og ná tónleikunum með Víkingi Heiðari í Salnum, þrátt fyrir að vera langt fram eftir degi suður í Keflavík. Vissi að það myndi verða tæpt og sú varð raunin, því ég náði því ekki. :-( Mikið svekkt, eins og þeir brilleruðu í Kastljósi kvöldið áður.
Við Karó fórum saman í skólann á miðvikudaginn þar sem ég fer í aukafyrirlestur í stærðfræði á miðvikudögum. Skiptumst á bókum og borðuðum á Langbest. Virðumst báðar eiga í smá vandræðum með að snúa sólarhringnum aftur á réttan kjöl, ehemm...
Fékk feitan bókapakka frá Amazon í vikunni svo ég hef nóg að lesa, og svo að reyna líka að klára LOST áður en nýja serían byrjar. Já, ég er sem betur fer langt frá því að vera aðgerðarlaus þótt ég sé atvinnulaus. :-)

Og svona smá brosmolar í lokin:





















.: í eyrunum // Freyja - FJALLABRÆÐUR
.: flokkar //: , , , , ,
skoða )
setja í minningar segðu frá
.: FLEYG ORÐ //
'I have been heartbroken once and it has affected all my relationships from there on. But now I look at it as a occupational hazard: If you're in the meat market, at some point you're gonna get Mad Cow disease.'

-Dominic Monaghan
.: HITT OG ÞETTA //
.: ELDRI FÆRSLUR //
Free Web Site Counters